Við bjóðum upp á vandaðar heildarlausnir í stálgrindarhúsum frá Weckman Steel sem þekkt er fyrir framúrskarandi gæði á heimsvísu. Húsin eru smíðuð í Finnlandi við hámarksgæðaeftirlit og eru einföld og fljótleg í uppsetningu sem skilar sér í lægri byggingarkostnaði. Kerfið er hannað með mjög stuttan byggingartíma í huga og býður uppá lausnir fyrir ýmsar stærðir og gerðir bygginga svo sem gripahús, lager, verkstæðishúsnæði, vélaskemmur og skrifstofuhúsnæði. H. Hauksson sér um allar teikningar sé þess óskað. Allar byggingar eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina. Burðarþolsútreikningar allra húsa taka mið af íslenskum aðstæðum hvað varðar vind- og snjóálag sem og íslenskum byggingareglugerðum. Í myndasafni hér fyrir neðan má sjá nokkur af Weckman stálgrindarhúsunum sem reist hafa verið á Íslandi.

Ásgarður - Kirkjubæjarklaustri
Vélageymsla

Dýrheimar - Víkurhvarf, Kópavogi
Lager, skrifstofa & kaffihús

Eystrahraun - Kirkjubæjarklaustri
Vélageymsla

Fet - Hella, Rangárvallasýslu
Hesthús og reiðhöll

Frumherji - Klettháls
Bifreiðaskoðun

Heimsendi - Kópavogi
Hesthús og Reiðhöll

Húsasmiðjan - Borgarnesi
Verslun og lager

Ingvarir - Svarfaðardalur
Vélageymsla

Nýfiskur - Sandgerði
Fiskvinnsla